‏ Psalms 99

1Drottinn er konungur! Þjóðirnar skjálfi! Hásæti hans stendur miklu ofar englunum. Jörðin nötri í óttablandinni virðingu.

2Drottinn ríkir með hátign á Síon, æðri öllum konungum á jörðu. 3Þeir tigni hans háa og heilaga nafn!

4Drottinn er voldugur konungur. Hann elskar réttlæti. Réttvísi og heiðarleiki einkenna stjórnarfar hans. Þannig ríkir hann í Ísrael. 5Vegsamið Drottin, hinn heilaga Guð! Föllum fram við fótskör hans.

6Móse og Aron voru prestar hans og Samúel spámaður hans. Þeir báðu til Drottins og hann bænheyrði þá. 7Úr skýstólpa talaði hann við þá, þeir hlustuðu og hlýddu fyrirmælum hans. 8Ó, Drottinn, þú ert okkar Guð! Þú svaraðir þeim og fyrirgafst syndir þeirra.

9Tignið Drottin Guð! Tilbiðjið hann í Jerúsalem á fjallinu helga. Hann er heilagur.
Copyright information for IslLO