‏ Revelation of John 13

Drekinn vinnur kraftaverk

1Í sýn minni sá ég nú einkennilegt dýr, sem reis upp úr hafinu. Það hafði sjö höfuð og tíu horn og á hornunum voru tíu kórónur. Á hvert höfuð um sig voru skráð guðlöstunar nöfn. Nöfn þessi áttu að ögra Guði og smána hann. 2Dýrið líktist hlébarða, en samt hafði það bjarnarfætur og ljónsgin. Drekinn gaf dýrinu mátt sinn, hásæti og mikið vald.

3Ég sá að eitt höfuð dýrsins virtist helsært – en svo varð það alheilt! Allur heimurinn varð gagntekinn undrun og fylgdi dýrinu með óttablandinni lotningu. 4Fólkið tilbað drekann fyrir að gefa dýrinu slíkt vald og það tilbað einnig þetta einkennilega dýr. „Hver getur jafnast á við það eða barist við það?“hrópuðu menn.

5Þá hvatti drekinn dýrið til að lastmæla Drottni, og hann gaf því vald til starfa á jörðinni í fjörutíu og tvo mánuði. 6Allan þann tíma formælti það nafni Guðs, musteri hans og öllum þeim sem á himni búa. 7Drekinn gaf dýrinu vald til að berjast gegn mönnum Guðs og sigra þá, og til að stjórna öllum þjóðum og þjóðarbrotum, hvar sem er á jörðinni. 8Og allir menn tilbáðu dýrið, allir þeir sem ekki höfðu verið skráðir í lífsbók lambsins frá upphafi heimsins – þess lambs sem slátrað var. 9Sá sem hefur eyra, hann heyri! 10Sá, sem ætlað er að fara í útlegð, mun fara í útlegð og sá, sem ætlað er að falla fyrir sverði, verður felldur með sverði. Í þessu reynir á trú og þolgæði hinna kristnu.

11Nú sá ég annað undarlegt dýr, það kom upp úr jörðinni. Á höfði þess voru tvö lítil horn, eins og lambshorn, en rödd þess var ógnþrungin líkt og rödd drekans. 12Dýr þetta fer með allt vald fyrra dýrsins, sem læknaðist, og fær allan heiminn til að tilbiðja það. 13Það vinnur ótrúleg kraftaverk. Það lætur til dæmis eld falla til jarðar af himni í augsýn allra. 14Með þessum kraftaverkum leiðir það íbúa heimsins í villu. Þegar fyrra dýrið er nálægt til að fylgjast með, getur hitt gert öll þessi furðuverk. Nú skipaði dýrið íbúum heimsins að búa til stóra styttu af fyrra dýrinu – því sem verið hafði sært, en læknast. 15Þegar því verki var lokið var dýrinu leyft að blása lífi í styttuna og láta hana tala. Styttan skipaði svo fyrir að hver sá, sem neitaði að tilbiðja hana, skyldi deyja!

16Styttan krafðist þess að allir, bæði stórir og smáir, ríkir og fátækir, ánauðugir og frjálsir, skyldu auðkenndir sérstöku merki á hægri hönd eða enni. 17Sá sem ekki hafði þetta merki – sem var einkennisstafur eða nafn dýrsins – fékk enga vinnu og jafnvel ekki að versla í neinni búð. 18Þetta er erfitt að skilja, en þeir sem geta, reikni einkennisstafi dýrsins: Tala þess er 666.
Copyright information for IslLO