Revelation of John 14
Nýr söngur
1Eftir þetta sá ég lamb sem stóð á Síonfjalli í Jerúsalem og með því voru 144 þúsundir, sem höfðu nafn þess og föður þess skrifuð á enni sér. 2Ég heyrði hljóð frá himnum, líkast miklum fossdrunum eða þrumum – þetta var kór sem söng við undirleik á hörpu. 3Þessi stórkostlegi kór – en hann var 144.000 raddir – söng nýjan og dásamlegan söng frammi fyrir hásæti Guðs og frammi fyrir öldungunum tuttugu og fjórum. Enginn gat sungið þennan söng nema þessar 144 þúsundir, sem keyptar höfðu verið burt af jörðinni. 4Fólk þetta er endurleyst úr hópi mannanna og það er án syndar, sem hreinar meyjar. Það fylgir lambinu hvert sem það fer. Það er sem fórn, helguð Guði og lambinu, 5og hjá því er enga lygi að finna, það er gallalaust. 6Þá sá ég engil sem flaug um himininn. Hann var með eilífan gleðiboðskap til þeirra sem búa á jörðinni. Boðskapur þessi var ætlaður öllum þjóðum og þjóðarbrotum, öllum mönnum, hvaða tungumál sem þeir töluðu. 7„Óttist Guð!“kallaði engillinn, „tignið nafn hans! Nú er stund dómsins runnin upp og hann er dómarinn! Tilbiðjið hann, því að hann skapaði himin, jörð og haf og allt sem í því er.“ 8Á eftir þessum engli kom annar engill, sem flaug um himininn og sagði: „Babýlon – borgin mikla – er fallin, hún sem tældi þjóðir heimsins til að drekka vín sem mengað var óhreinleika og synd.“ 9Þá kom þriðji engillinn og hann kallaði: „Hver sá, sem tilbiður dýrið, sem reis upp úr hafinu, og líkneski þess og lætur setja merki þess á enni sitt eða hönd sína, 10verður látinn drekka reiðivín Guðs – þetta vín er í reiðibikar Guðs og það er óblandað. Þeir sem það drekka, munu kvaldir í eldi og logandi brennisteini í augsýn heilagra engla og lambsins. 11Reykurinn af kvölum þeirra mun stíga upp um alla eilífð. Þeir fá enga hvíld, hvorki dag né nótt, vegna þess að þeir tilbáðu dýrið og líkneski þess og eru merktir einkennisstöfum þess. 12Þetta ætti að hvetja börn Guðs til að gefast ekki upp, þótt þau mæti ofsóknum og erfiðleikum. Börn Guðs – hinir heilögu – eru þeir sem varðveita trúna á Jesú allt til enda og hlýða orðum hans.“ 13Nú heyrði ég rödd uppi yfir mér á himnum sem sagði: „Skrifaðu niður þessar setningar: Nú geta píslarvottarnir loksins gengið inn og tekið við launum sínum. Já, segir andi Guðs, blessun Guðs er yfir þeim, því að nú fá þeir að hvílast frá öllum sínum raunum og striti. Góðverk þeirra fylgja þeim til himins!“ 14Þessi sýn hvarf, en nú sá ég hvítt ský og á því sat einhver sem líktist Jesú, mannssyninum. Á höfði bar hann kórónu úr skíra gulli og í hendinni hafði hann beitta sigð.Uppskera jarðarinnar er fullþroskuð
15Þá kom engill út úr musterinu og kallaði til hans: „Nú skaltu bregða sigðinni, því að uppskerutíminn er kominn og uppskera jarðarinnar er fullþroskuð.“ 16Sá sem sat á skýinu brá þá sigðinni á jörðina og uppskerunni var safnað saman. 17Að þessu loknu kom annar engill út úr musterinu á himnum, hann hélt einnig á beittri sigð. 18Þá hrópaði engillinn, sem hefur vald til að eyða jörðinni í eldi, til engilsins með beittu sigðina og sagði: „Notaðu nú sigðina og skerðu vínþrúgurnar af vínviði jarðarinnar, því að þær eru fullþroska og hæfar til dóms.“ 19Engillinn brá þá sigðinni á jörðina og safnaði vínþrúgunum saman í hina miklu reiðivínpressu Guðs. 20Í vínpressu þessari, sem er fyrir utan borgina, voru vínþrúgurnar síðan kramdar. Blóðflaumurinn frá vínpressunni varð um 300 kílómetra langur og svo djúpur að hann náði upp undir beisli hestanna.
Copyright information for
IslLO