‏ Revelation of John 16

Englarnir sjö

1Næst heyrði ég volduga rödd hrópa frá musterinu til englanna sjö: „Farið og hellið úr þessum sjö reiðiskálum Guðs yfir jörðina.“

2Þá yfirgaf fyrsti engillinn musterið og hellti úr sinni skál yfir jörðina. Þá brutust út ljót og illkynja sár á þeim sem báru merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess.

3Annar engillinn hellti úr sinni skál yfir höfin. Þau urðu eins og blóð úr dauðum manni og lífvana.

4Þriðji engillinn tæmdi sína skál í fljótin og uppspretturnar og þá breyttist vatnið í þeim í blóð. 5Þá heyrði ég engil vatnanna segja: „Þú hinn heilagi, þú sem ert og sem varst, það er rétt af þér að senda þennan dóm, 6því að blóði heilagra og spámannanna hefur verið úthellt á jörðinni. En nú hefur þú svarað með því að gefa þeim, sem myrtu þá, blóð að drekka og það eiga þeir sannarlega skilið.“

7Þá heyrði ég engilinn við altarið segja: „Já, Drottinn Guð, þú hinn almáttki, þínir dómar eru réttlátir og sannir.“

8Fjórði engillinn hellti úr sinni skál yfir sólina og olli því að hún brenndi mennina með eldi. 9Þessi hræðilegi hiti brenndi þá, en þeir formæltu Guði sem hafði sent þessar plágur. Mennirnir sáu ekki að sér og gáfu ekki heldur Guði dýrðina.

10Fimmti engillinn tæmdi úr sinni skál yfir hásæti dýrsins, sem reis upp úr hafinu og ríki þess myrkvaðist. Þeir sem fylgdu dýrinu, bitu þá í tungur sínar af kvöl. 11Og þeir formæltu Guði himnanna sem hafði leitt þessar plágur yfir þá. En ekki vildu þeir láta af illverkum sínum.

12Sjötti engillinn hellti úr sinni skál yfir fljótið mikla Evfrat, svo að það þornaði upp. Eftir þetta gátu konungar austursins farið með heri sína vesturyfir, án nokkurrar hindrunar. 13Þá sá ég þrjá illa anda, sem líktust froskum, stökkva út úr gini drekans, dýrsins og falsspámannsins sem þjónaði því. 14Þessir illu andar, sem höfðu vald til að gera kraftaverk, ráðguðust nú við leiðtoga heimsins um að safna liði til að berjast við Drottin á hinum mikla degi, er Guð, hinn alvaldi, mun dæma heiminn.

15„Taktu eftir: Ég kem öllum að óvörum eins og þjófur! Þeir sem bíða mín, hljóta blessun, þeir sem eru klæddir og viðbúnir. Þeir þurfa ekki að ganga um naktir sér til blygðunar.“

16Og þeir söfnuðu öllum herjum heimsins saman á stað, sem kallast á hebresku Harmageddón – eða Meggiddófjallið.

17Sjöundi engillinn hellti úr sinni skál yfir loftið og heyrðist þá hrópað hárri röddu frá hásæti musterisins á himnum: „Það er fullkomnað!“ 18Þá komu þrumur og eldingar og svo miklir jarðskjálftar að aldrei hefur annað eins orðið í sögu mannkyns. 19Stórborgin Babýlon klofnaði í þrjá hluta og borgir um víða veröld jöfnuðust við jörðu. Þá minntist Guð allra synda Babýlonar og refsaði henni. Hann lét hana drekka bikar heiftarreiði sinnar í botn, já, til hins síðasta dropa. 20Þá hurfu eyjar og fjöllin jöfnuðust út. Síðan kom gífurlegt hagl frá himni – hvert korn vóg fimmtíu kíló – og féll á fólkið sem þá formælti Guði.
Copyright information for IslLO