Revelation of John 17
Skarlatsklædda konan
1Þá kom til mín einn af englunum sjö, sem leitt hafði plágurnar yfir jörðina, og sagði: „Komdu með mér, ég ætla að sýna þér afdrif skækjunnar miklu sem situr uppi yfir vötnum heimsins – þjóðunum. 2Konungar jarðarinnar hafa drýgt hór með henni og þjóðir heimsins hafa orðið drukknar af ólifnaðarvíni hennar.“ 3Engillinn fór nú með mig í anda út í eyðimörkina. Þar sá ég konu sitja á skarlatsrauðu dýri. Dýrið hafði sjö höfuð og tíu horn og voru hornin alskrifuð formælingum um Guð. 4Föt konunnar voru purpuri og skarlat og hún bar skartgripi úr gulli, gimsteinum og perlum. Í hendinni hafði hún gullbikar, fullan af viðbjóði. 5Þessi einkennilega setning var skrifuð á enni hennar: „Babýlon, hin mikla, móðir hórkvenna og skurðgoðadýrkenda um allan heim.“ 6Ég sá að hún var ölvuð. Hún var drukkin af blóði þeirra sem dáið höfðu vegna nafns Jesú – þeirra sem hún hafði drepið. Ég starði á hana með hryllingi. 7„Af hverju ertu undrandi?“spurði engillinn, „ég skal segja þér hver hún er og hvaða dýr þetta er sem hún situr á. 8Það var lifandi, en er það ekki lengur, og bráðlega mun það koma upp úr undirdjúpunum og fara til eilífrar glötunar. Þeir íbúar heimsins, sem ekki hafa fengið nöfnin sín skráð í bók lífsins frá því heimurinn varð til, munu undrast að dýrið skuli lifna við eftir dauðann. 9Nú reynir á skilninginn: Höfuðin sjö tákna ákveðna borg, sem byggð er á sjö hæðum, og þar er aðsetur konunnar. 10Höfuðin tákna líka sjö konunga. Fimm eru þegar fallnir, sá sjötti er nú við völd, en sá sjöundi er enn ekki kominn fram. Hann mun aðeins ríkja stuttan tíma. 11Skarlatsrauða dýrið, sem dó, er áttundi konungurinn, en hann var áður við völd – einn af þessum sjö. Þegar hann hefur ríkt í seinna skiptið, mun hann fá sinn dóm eins og hinir. 12Hornin tíu eru tíu konungar sem hafa ekki enn komist til valda. Þeir munu aðeins ríkja skamma hríð og þá með dýrinu. 13Þeir munu lýsa því sameiginlega yfir að dýrið sé leiðtogi þeirra. 14Síðan munu þeir sameinast og heyja stríð gegn lambinu, en lambið mun sigra þá, því að það er konungur konunganna og þeir sem því fylgja, eru hinir kölluðu, útvöldu og trúföstu. 15Höfin, vötnin og fljótin, sem skækjan situr á, tákna þjóðir og fólk af öllum tungum jarðarinnar. 16Skarlatsrauða dýrið og hornin tíu sem á því eru – en þau tákna tíu konunga, sem ríkja munu ásamt dýrinu – sameinast í hatri til konunnar. Þeir munu ráðast á hana, hrekja hana í einsemd, svipta hana klæðum og brenna á báli. 17Guð mun vekja með þeim ákveðnar hugsanir, til þess að koma áformum sínum í framkvæmd. Þeir munu verða sammála um að afhenda skarlatsrauða dýrinu öll sín völd og það mun leiða til þess að orð Guðs rætist. 18Konan, sem þú sást í sýninni, táknar borgina miklu sem ríkir yfir konungum jarðarinnar.“
Copyright information for
IslLO