Revelation of John 2
1Skrifaðu bréf til leiðtoga safnaðarins í Efesus og segðu honum þetta: Ég skrifa þér orðsendingu frá honum sem gengur á milli safnaðanna sjö og heldur leiðtogum þeirra uppi með hægri hendi sinni. Hann segir við þig: 2Ég þekki allt hið góða sem þú hefur gert. Ég hef fylgst með erfiði þínu og þekki þolinmæði þína. Ég veit að þú sættir þig ekki við vonda menn í söfnuðinum og hefur rannsakað fullyrðingar þeirra sem telja sig vera postula, en eru það ekki. Þú hefur komist að því að þeir eru lygarar. 3Þú hefur þolað illt mín vegna, en þó ekki gefist upp. 4En eitt er að: Kærleikur þinn til mín er ekki sá sami og áður. 5Manstu hvernig þú elskaðir mig í upphafi? Sérðu breytinguna? Snúðu þér aftur til mín og farðu eins að og í byrjun, annars kem ég og fjarlægi lampann þinn. 6En þú hatar verk þessara ósvífnu Nikólaíta, rétt eins og ég, og það fellur mér vel. 7Taktu eftir því sem andinn segir nú við söfnuðina: „Þeim sem sigrar, mun ég gefa ávöxt af lífsins tré, sem vex í paradís Guðs.“ 8Leiðtoga safnaðarins í Smýrnu skaltu skrifa þetta: Þetta er boðskapur frá honum sem er hinn fyrsti og hinn síðasti, honum, sem var dauður, en lifnaði við. 9Ég veit hversu mjög þú þarft að líða vegna Drottins og ég þekki fátækt þína en mundu að þú átt himnesk auðæfi! Ég veit að þeir, sem segjast vera Gyðingar og Guðs börn, tala illa um þig, en þeir eru ekki Guðs börn, heldur fulltrúar Satans. 10Innan skamms mun djöfullinn varpa sumum ykkar í fangelsi til þess að reyna ykkur, en vertu þó ekki hræddur vegna þjáninganna sem bíða þín. Þið munuð verða ofsótt í tíu daga. En gefist ekki upp, jafnvel þótt þið þurfið að horfast í augu við dauðann. Vertu trúr allt til dauða og þá mun ég gefa þér kórónu lífsins – dýrlega framtíð, sem aldrei tekur enda. 11Takið eftir því sem andinn segir nú við söfnuðina: „Þeim sem sigrar mun hinn annar dauði ekki granda.“ 12Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Pergamos: Þetta bréf er frá honum, sem berst með hinu beitta og tvíeggjaða sverði. 13Ég veit vel að í borginni þar sem þú býrð, er hásæti Satans og að hann er tilbeðinn þar af miklu kappi. En samt hefur þú verið mér trúr og ekki viljað afneita mér, jafnvel þótt áhangendur Satans tækju Antípas, minn trúa vott, af lífi mitt á meðal ykkar. 14Samt finn ég eitt athugavert hjá þér. Þú umberð menn í ykkar hópi, sem feta í fótspor Bíleams, sem sagði Balak hvernig ætti að tæla Ísraelsmenn – fá þá til að drýgja hór – og hvetja þá til að taka þátt í heiðnum hátíðum til heiðurs skurðgoðunum. 15Slíkir menn, fylgjendur Bíleams, finnast á meðal ykkar! 16Afstaða þín til þessara manna verður að breytast, annars kem ég fyrirvaralaust og berst við þá með sverði munns míns. 17Allir, sem heyrn hafa, taki eftir því sem andinn segir söfnuðunum: „Þeir sem sigra, fá að eta hið hulda manna – hina leyndu fæðu himnanna. Ég mun gefa hverjum um sig hvítan stein, sem á verður grafið nýtt nafn, sem viðtakandinn einn þekkir.“ 18Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Þýatíru: Þessi boðskapur er frá syni Guðs. Augu hans loga sem eldur og fætur hans eru eins og fægður eir. 19Ég þekki þín góðu verk: Umhyggju þína fyrir fátæklingum – allar gjafirnar og þjónustuna, sem þú hefur veitt þeim. Ég veit líka um kærleika þinn, trú þína og þolinmæði og ég sé að þér fer stöðugt fram. 20Eitt finnst mér samt aðfinnsluvert hjá þér: Þú leyfir Jessabel, konunni sem telur sig hafa spádómsgáfu, að segja þjónum mínum að siðleysi sé ekki alvarlegt mál. Hún hvetur þá til að drýgja hór og borða kjöt sem fórnað hefur verið skurðgoðunum. 21Ég gaf henni frest til að skipta um skoðun og taka nýja stefnu, en hún vildi það ekki. 22Taktu nú eftir því sem ég segi: Ef hún og þeir, sem fylgt hafa siðleysi hennar, iðrast ekki synda sinna, mun ég láta þau öll leggjast á sóttarsæng 23og börn hennar mun ég deyða. Með þessu munu söfnuðirnir skilja, að ég er sá sem rannsaka leyndustu hugsanir mannsins og geld hverjum um sig eins og hann á skilið. 24– 25Þið í Þýatíru, sem ekki hafið fylgt þessari fölsku kenningu (sem þau kalla „Hinn djúpa sannleika“– og sem í raun og veru er runnin undan rifjum Satans), ég krefst einskis frekar af ykkur. Haldið aðeins fast við það sem þið hafið, þangað til ég kem. 26Þeim sem sigra – þeim sem gera minn vilja allt til enda – mun ég gefa vald yfir þjóðunum. 27Þið munuð stjórna þeim með járnsprota á sama hátt og ég – slíkt vald gaf faðir minn mér – og þær munu brotna eins og leirkrukka, sem fer í þúsund mola. 28En ykkur færi ég morgunstjörnuna að gjöf! 29Þið sem heyrið, hlustið á það sem Guðs andi segir söfnuðunum.
Copyright information for
IslLO