Revelation of John 20
Djöfullinn fangelsaður
1Eftir þetta sá ég engil koma frá himni og hélt hann á lykli sem gekk að undirdjúpunum. Auk þess hafði hann meðferðis þunga hlekki. 2– 3Hann greip drekann, gamla höggorminn, djöfulinn, – Satan – hlekkjaði hann og fleygði honum í botnlausa hyldýpið. Síðan lokaði hann því og læsti og þar varð Satan að dúsa í þúsund ár. Þetta gerði engillinn til þess að Satan gæti ekki leitt þjóðirnar afvega fyrr en að þessum þúsund árum liðnum, en þá átti að láta hann lausan í stuttan tíma. 4Eftir þetta sá ég hásæti, sem í sátu einhverjir er fengið höfðu vald til að dæma. Ég sá sálir þeirra sem líflátnir höfðu verið fyrir að vitna um Jesú og predika Guðs orð. Þeir höfðu hvorki tilbeðið dýrið né líkneski þess né heldur fengið merki þess á enni sín eða hendur. Þessir höfðu vaknað aftur til lífsins og nú ríktu þeir með Kristi í þúsund ár. 5Þetta er fyrri upprisan. Aðrir dauðir lifnuðu ekki fyrr en þúsund árin voru á enda. 6Blessaðir og heilagir eru þeir, sem hlut eiga í fyrri upprisunni, því hinn annar dauði hefur ekkert vald yfir þeim. Þeir munu verða prestar Guðs og Krists og ríkja með honum í þúsund ár. 7Að þúsund árum liðnum mun Satan verða leystur úr haldi. 8Þá mun hann fara af stað til að leiða þjóðirnar afvega um alla jörðina og stefna þeim saman, ásamt Gog og Magog, til stríðs. 9Mikill grúi mun safnast saman á sléttunni miklu og umkringja fólk Guðs og Jerúsalem, borgina elskuðu. En Guð mun láta eld falla af himni yfir árásarliðið og eyða því. 10Þá mun djöflinum, honum sem leiddi þjóðirnar afvega, aftur verða fleygt í díkið, sem logar af eldi og brennisteini, þar sem bæði dýrið er og falsspámaðurinn og þessir munu kveljast dag og nótt um alla eilífð. 11Eftir þetta sá ég stórt, hvítt hásæti og þann sem í því sat. Jörðin og himinhvolfið hurfu fyrir augliti hans, svo að þau sáust ekki. 12Síðan sá ég hina dauðu, bæði stóra og smáa, þar sem þeir stóðu frammi fyrir Guði. Bækurnar voru opnaðar, þar á meðal bók lífsins, og hinir dauðu voru dæmdir eftir því sem skráð var í bókunum, hver og einn eftir verkum sínum. 13Höfin skiluðu aftur þeim sem þar voru geymdir og jörðin og undirheimarnir þeim sem þar voru. Hver og einn var dæmdur samkvæmt verkum sínum. 14Síðan var dauðanum og hel varpað í eldsdíkið. Þetta er hinn annar dauði: Eldsdíkið. 15Sérhverjum þeim, sem ekki fannst skráður í lífsins bók, var fleygt í eldsdíkið.
Copyright information for
IslLO