‏ Romans 14

Lögmál frelsisins

1Sýndu hverjum kristnum manni, sem til þín leitar, vinarhug og gagnrýndu hann ekki þótt trú hans sé veik og hann hafi aðrar skoðanir en þú um hvað sé rétt eða rangt. 2Þú ættir til dæmis ekki að deila við hann um hvort leyfilegt sé að borða kjöt, sem notað hefur verið í fórn til skurðgoðanna, eða ekki. Slíkt er þér ef til vill ekkert vandamál, en trú hans er veikari en þín og honum finnst það vera rangt og því neytir hann alls ekki kjöts, sé það fórnarkjöt, heldur grænmetis. 3Þeir sem ekkert sjá athugavert við það að borða slíkt kjöt, mega ekki líta niður á þá sem láta þess óneytt og sért þú einn þeirra, þá skaltu ekki gagnrýna þá sem hafa aðra skoðun, því að Guð hefur tekið þá að sér sem sín börn. 4Þeir eru þjónar Guðs en ekki ykkar. Látið Guð um að segja þeim hvort þeir hafi á réttu eða röngu að standa, því hann er fullkomlega fær um að gera það. 5Sumum finnst að kristnir menn eigi að líta á helgidaga Gyðinga sem sína tilbeiðsludaga, en aðrir segja það rangt og finnst heimskulegt að fara eftir reglum Gyðinga að því leyti, því að allir dagar séu jafnir fyrir Guði. Hver og einn verður að taka eigin ákvörðun um slíka hluti. 6Notir þú ákveðna daga til að tilbiðja Drottin, þá er það gert honum til heiðurs og slíkt er góður siður. Sama er að segja um þann sem neytir kjöts sem fórnað hefur verið skurðgoðunum, hann þakkar Guði fyrir kjötið og er það rétt. Þeim, hins vegar, sem ekki vill snerta slíkt kjöt, er einnig umhugað um að þóknast Drottni og hann er þakklátur. 7Við lifum ekki aðeins sjálfra okkar vegna og getum því ekki lifað og dáið eins og okkur þóknast. 8Hvort sem við lifum eða deyjum, þá tilheyrum við Drottni, því hans erum við. 9Kristur dó og reis síðan upp til að vera Drottinn okkar og konungur, bæði í lífi og dauða.

10Þú hefur engan rétt til að gagnrýna trúbróður þinn né líta niður á hann. Minnstu þess að við verðum hvert um sig að standa frammi fyrir dómstóli Guðs. 11Í Gamla testamentinu stendur:

„Svo sannarlega sem ég lifi,“segir Drottinn, „mun hver maður verða að krjúpa á kné fyrir mér og sérhver tunga viðurkenna að ég er Guð.“

12Sérhvert okkar verður að standa Guði reikningsskil á lífi sínu, 13hættið því að gagnrýna hvert annað! Reynið heldur að lifa þannig að þið verðið aldrei trúsystkinum ykkar að falli og látið þau því ekki sjá ykkur gera neitt það sem þau álíta vera rangt.

Lögmál kærleikans

14Ég er þess fullviss, vegna samfélags míns við Drottin Jesú, að ekkert er rangt við það að neyta kjöts sem fórnað hefur verið skurðgoðunum, en ef einhver álítur það rangt, þá ætti hann ekki að neyta þess trúar sinnar vegna. 15Viljir þú halda áfram að neyta þess matar sem þú veist að veldur trúsystkini þínu hugarangri, þá framgengur þú ekki í kærleika. Láttu ekki neysluvenjur þínar verða þeim til tjóns, sem Kristur dó fyrir. 16Forðastu að gera það sem þú veist að verður gagnrýnt, enda þótt þú vitir að sú gagnrýni sé ósanngjörn. 17Þegar allt kemur til alls, þá skiptir það okkur kristna menn ekki mestu hvað við borðum eða drekkum, heldur að lifa í kærleika, friði og fögnuði heilags anda. 18Ef þú gerir Krist að húsbónda í lífi þínu að því er þetta varðar, þá mun það bæði gleðja Guð og menn. 19Keppum því eftir að efla frið og sameiginlega uppbyggingu kirkjunnar, 20og rífum ekki niður verk Guðs fyrir einn kjötbita! 21Bindindi á kjöt og vín er rétt ef neysla þess hneykslar trúsystkini okkar og leiðir þau í synd. 22Haltu fast við trúarsannfæringu þína, en notaðu hana samt ekki til að storka öðrum. 23Sá sem fær slæma samvisku af að hafa borðað kjöt, ætti að láta það ógert, því að sá syndgar sem gerir eitthvað gegn betri vitund.
Copyright information for IslLO